12.8 Greinargerð um lánveitingar til hlutabréfakaupa

12.8.1 Inngangur

Í þessum kafla verða rannsökuð viðskipti einstaklinga og fyrirtækja með hlutabréf í Kaupþingi banka hf., Landsbanka Íslands hf. og Glitni.banka hf. Við valið á aðilunum var litið til stærðar einstakra viðskipta og einnig samtölu heildarviðskipta frá upphafi árs 2007 fram að falli bankanna. Við þessa frumathugun var miðað við öll einstök viðskipti yfir 50 milljónum kr. og ef viðskipti voru yfir 50 milljónum kr. á sex mánaða tímabili. Til að þrengja viðfangsefnið var kannað hver þessara aðila hefði notið fyrirgreiðslu frá bönkunum þremur. Niðurstaðan var að nánari rannsókn var gerð á viðskiptum 32 félaga. Öll félögin, utan eitt, og einstaklingarnir sem skoðaðir voru fengu fyrirgreiðslu til hlutabréfakaupa yfir 1 milljarð kr. Ástæða þess að eitt félag með fyrirgreiðslu undir 1 milljarði kr. var skoðað er hversu sérstök lánsbeiðnin og ráðstöfun lánsins var.

Gögn sem stuðst var við í þessari rannsókn voru, auk hlutabréfaviðskiptagagna sem lýst er í kaflanum, fundargerðir lánanefnda fjármálafyrirtækjanna. Miðað var við að fram kæmi með óyggjandi hætti í lánabeiðnum eða lánaafgreiðslum að óskað væri eftir láni til hlutabréfakaupa í fjármálafyrirtæki, þ.e. að viðskiptavinurinn ætlaði sér að ráðstafa andvirði lánsins til þess að kaupa hlutabréf í fjármálafyrirtækinu sjálfu eða öðru fjármálafyrirtæki. Eftir öðrum gögnum og upplýsingum, sem nota þurfti, var óskað skriflega hjá viðkomandi fjármálafyrirtæki. Upplýsingar um félög, s.s. stjórn, samþykktir, eignarhald, eignatengsl og ársreikninga, voru fengnar úr Ársreikningaskrá ríkisskattstjóra og úr gagnagrunni Creditinfo.

Þótt reynt væri að hafa framsetninguna sem mest á samræmdu formi þurfti í ákveðnum tilvikum að lýsa hlutafjárkaupum tveggja eða fleiri félaga sameiginlega, þar sem þau voru svo samtvinnuð gegnum eigendatengsl eða á annan hátt að ekki var mögulegt að fjalla um þau hvort eða hvert í sínu lagi.

Í umfjöllun og greiningu á hverju félagi koma eftirfarandi upplýsingar fram um hvert og eitt félag:

Vikið er að því hver sé yfirlýstur tilgangur með starfsemi félagsins eins og hann birtist í samþykktum þess. Þá er jafnan greint frá því hvort um sé að ræða einkahlutafélag eða hlutafélag. Tilgreindar eru helstu eignir, s.s. eignarhlutir í öðrum félögum, fasteignir o.fl. ef við á.

Greint er frá því hverjir séu helstu eigendur félagsins. Þá eru stjórnarmenn taldir upp og framkvæmdastjóri. Ef félagið er hluti af samstæðu er getið um móðurfélagið. Jafnframt eru önnur eignatengsl rakin, s.s. dótturfélög, ef ástæða þykir til en það gat farið eftir eðli þess máls sem verið var að kanna hverju sinni.

Birt er viðskiptayfirlit fyrir hvert félag og þær lánveitingar sem fjallað er um. Þá er gerð grein fyrir hlutabréfaviðskiptum sem tengdust lánveitingunni. Yfirlitið nær yfir tímabilið frá 1. janúar 2007 til falls bankanna í október 2008. Tekið er fram hvaða fjármálafyrirtæki veittu lánið eða lánin og hversu há lánsheimildin var. Þá er greint frá kaupum og sölu hlutabréfa á markaðsvirði hverju sinni. Fram kemur hlutabréfaeign viðskiptamanns í viðkomandi fjármálafyrirtæki 1. janúar 2007 á markaðsvirði. Því næst er greint frá mun á kaup- og söluvirði hlutabréfa á tímabilinu. Að síðustu er gerð grein fyrir hlutabréfaeign viðskiptamanns í viðkomandi fjármálafyrirtæki á nafnvirði 1. janúar 2007 og við fall bankanna í október 2008.

Hafa þarf í huga, að við kaup á hlutabréfum, sem tengjast lánveitingu, liggur alltaf fyrir hversu marga hluti verið er að kaupa hverju sinni og hvert er kaupgengi þeirra. Hins vegar er í nokkrum tilfellum um sífelldar hreyfingar og millifærslur á hlutabréfum milli einstakra vörslureikninga í eigu sama aðila að ræða. Sömuleiðis voru hlutabréf mjög oft flutt fram og til baka milli félaga sem eru í eigu sömu aðila. Þessar hreyfingar geta valdið því, að stundum verður erfitt að rekja feril hlutabréfanna m.t.t. þess að finna út markaðsvirði þeirra nákvæmlega. Þegar þessi staða hefur komið upp hefur verið miðað við meðalkaup- eða sölugengi hlutabréfanna á þeim degi sem hlutabréfin voru keypt eða seld.

Farið er yfir ákvarðanir og niðurstöður lánanefnda fjármálafyrirtækjanna, hversu há lánsheimildin er og í hvaða tilgangi nota eigi andvirði lánsins. Þá er tekið fram í hvaða mánuði lánanefndin samþykkti lánsumsóknina.

Skýrt er frá hvaða tryggingar lántaki þurfi að leggja fram. Sömuleiðis kemur fram ef tryggingarnar eru einungis veð í hinum keyptu hlutabréfum. Þá er einnig greint frá mörkum á lánaþekju, veðkalli og ábyrgð á veðkalli ef upplýsingar um það koma fram í fundargerðum.

Ef vitað er um tengsl milli lántaka og fjármálafyrirtækis er þeirra tengsla getið. Eins er getið um eignatengsl, viðskiptatengsl, fjölskyldutengsl o.fl. ef upplýsingar um slík tengsl liggja fyrir.

Gerð er stuttlega grein fyrir síðasta birta ársreikningi félagsins. Tekið er fram hvert sé eigið fé félagsins í árslok og hve mikill hluti þess sé hlutafé. Þá kemur fram hver afkoma félagsins á síðasta reikningsári hafi verið. Þá kemur einnig fram hvort ársreikningurinn hafi verið endurskoðaður eða ekki. Hafi endurskoðandi aðstoðað við gerð ársreikningsins en ekki endurskoðað hann, þá er þess getið. Ef endurskoðaður ársreikningur er áritaður með fyrirvara er þess getið og fyrirvarinn birtur í heild sinni.

Þessi umfjöllun er ekki tæmandi en ætti að gefa mynd af hlut þessara fjármálafyrirtækja í umræddum lánveitingum og að vissu leyti viðskiptum með hlutabréf í þeim. Hins vegar er ekki útilokað að einstaka félag hafi verið með lánaheimildir sem farið hafi til hlutabréfakaupa án þess að um það hafi sérstaklega verið getið í fundargerðum. Þá er heldur ekki útilokað að einstaka félag hafi fengið lánaheimildir í öðrum fjármálafyrirtækjum til hlutabréfakaupa. Vitnað er til fundargerða lánanefnda þar sem það á við og eru tilvitnanir í fundargerðir, sem gerðar voru á ensku, þýddar yfir á íslensku.

Lánveitingar fjármálafyrirtækjanna til félaganna 32 nema samtals 316 milljörðum kr. sem eru um 39,2% af eigin fé stóru bankanna þriggja í lok júní 2008. Lánveitingarnar flokkast á eftirfarandi hátt niður á bankana þrjá:

Sérstaka athygli vekur að 14 félög, eða tæplega helmingur félaganna sem rannsóknin tók til, voru einungis með lágmarkshlutafé, þ.e. 500 þúsund kr., sjá töflu 2. Þessi félög fá lánaheimildir að fjárhæð 109 milljarðar kr., á móti einungis samtals 7 milljóna kr. stofnhlutafé. Félög með hlutafé á bilinu 500 þúsund kr. til 5 milljóna kr. fá lánaheimildir að fjárhæð 49 milljarðar kr. Félög með hlutafé á bilinu 5 til 50 milljóna kr. eru þrjú talsins og fá þau lánaheimildir að fjárhæð 16 milljarðar kr. Félög með 50 milljónir kr. eða meira í hlutafé eru sjö talsins og eru þau með 78 milljarða kr. í lánaheimildir.

Fjögur félög eru skráð erlendis. Litlar upplýsingar er að finna um þessi félög hérlendis. Þó er vitað að þrjú þeirra eru í íslenskri eigu og að eigendurnir eru með lögheimili hér á Íslandi. Tvö félaganna voru nýstofnuð og þar af leiðandi með enga rekstrarsögu á bak við sig þegar þau fá lánaheimildir hjá bönkunum. Þessi fjögur félög eru með 48 milljarða kr. í lánsheimildir.

Lánsheimildir félaganna sem eru með einungis 500 þúsund kr. í stofnhlutafé eru að meðaltali tæplega 8 milljarðar kr. Einnig eru lánsheimildir til félaga með stofnhlutafé milli 500 þúsund og 5 milljóna kr. að meðaltali 12,2 milljarðar kr. Í töflu 3 er yfirlit yfir öll félögin sem tekin voru til rannsóknar í þessum kafla og fyrirgreiðslur þeim til handa.

12.8.2 Umfjöllun um einstök fyrirtæki

Þáttur International ehf./Svartháfur ehf. Hér á eftir verður fjallað samhliða um félögin Þátt International ehf. og Svartháf ehf.

Á hluthafafundi í ELL 60 ehf. sem haldinn var 12. janúar 2007 var samþykkt að breyta nafni félagsins í Þáttur International ehf. Þá var ný stjórn félagsins kjörin. Guðmundur Ólason var kjörinn í aðalstjórn og Jóhannes Sigurðsson í varastjórn. Enginn framkvæmdastjóri er skráður fyrir félaginu.

Í 2. gr. samþykkta Þáttar International ehf. eins og þær voru samþykktar 12. janúar 2007 kemur fram að:

„Tilgangur félagsins er gerð fjármögnunarsamnings við Morgan Stanley & Co. International Limited („MSIL“) og annarra tengdra samninga og skuldbindinga í tengslum við einstök viðskipti milli félagsins og MSIL, þ.m.t. að samþykkja breytta skilmála vegna kaupa félagsins á hlutabréfum í Glitni.banka hf.; að veita MSIL tryggingar í eignum félagsins; eignarhald á bréfum í Glitni.banka hf.; að gera samninga við móðurfélag eða tengd félög til þess að standa við skuldbindingar sínar í tengslum við einstök viðskipti milli félagsins og MSIL og lána fjármuni sem tengjast einstökum viðskiptum eða tekjum félagsins til móðurfélags eða tengdra félaga. Félaginu er ekki heimilt að sinna annarri starfsemi en heimiluð er í samþykktum þessum og er þannig ekki heimilt að gangast undir aðrar skuldbindingar, nema slíkt sé óhjákvæmilegt að lögum, eða veita tryggingar til annarra aðila en MSIL nema slíkt sé í samræmi við skilmála einstakra viðskipta við MSIL eða heimilað í samþykktum þessum.“

Á hluthafafundi Þáttar International ehf. sem haldinn var 11. júní 2008 var sú breyting gerð á samþykktum félagsins að framvegis yrðu stjórnarmenn tveir og þyrfti samþykki þeirra beggja til að skuldbinda félagið. Í stjórn voru kjörnir: Guðmundur Ólason, formaður, og Einar Sveinsson, stjórnarmaður.

Á hluthafafundinum var 2. gr. (tilgangur) samþykkta félagsins jafnframt breytt og var hún nú þannig: „Tilgangur félagsins er eignarhald verðbréfa, lánastarfsemi og önnur fjármálastarfsemi, og skyldur rekstur“.

Frumeigendur Þáttar International ehf. eru: SJ2 ehf. 48,8%, Skeggi ehf. 39,1% og Fjárfestingarfélagið Máttur ehf. 12,1%. Við athugun á eignarhaldi þriggja ofangreindra félaga og hvernig það greinist niður á einstaka aðila lítur eignarhald Þáttar International ehf. þannig út:63

Félagið Leiftri Ltd. sem skráð er erlendis er að fullu í eigu Karls Emils og Steingríms Wernerssona.64

Félagið ELL 150 ehf. er stofnað af LOGOS lögmannsþjónustu sf. hinn 17. janúar 2008. Á hluthafafundi sem haldinn er 28. febrúar 2008 er nafni félagsins breytt í Svartháf ehf. ásamt því að eigendaskipti verða á félaginu og verður Werner Ívan Rasmusson eini eigandi þess. Þá taka sæti í stjórn þau Werner Ívan Rasmusson, faðir Karls Emils og Steingríms Wernerssona, og Kristín Sigurðardóttir eiginkona hans, varamaður. Werner er jafnframt skráður framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins. Félagið starfaði því undir nafninu Svartháfur ehf. frá 28. febrúar 2008. Samkvæmt samþykktum Svartháfs ehf. er tilgangur félagsins kaup, sala, rekstur, eignarhald og leiga fasteigna og hvers kyns lausafjár; eignarhald, kaup og viðskipti með hlutabréf, hluti í félögum, önnur verðbréf og hvers kyns önnur fjárhagsleg verðmæti; lánastarfsemi og skyldur rekstur.

Á tímabilinu 1. janúar 2007 til falls bankanna áttu sér stað eftirfarandi viðskipti með hlutabréf og lántökur hjá félögunum Þætti International ehf. og Svartháfi ehf. vegna hlutabréfakaupa í bönkunum:

Hlutabréfaeign Þáttar International ehf. og Svartháfs ehf. í bönkunum hinn 1. janúar 2007 er engin. Á tímabilinu fær Þáttur International ehf. lánsheimild að fjárhæð 8,9 milljarðar kr. og Svartháfur að fjárhæð 28,1 milljarður kr. Samtals eru því lánsheimildir til félaganna beggja 37 milljarðar kr. Keypt hlutabréf eru að fjárhæð 38,5 milljarðar kr. og seld hlutabréf eru að andvirði 16,2 milljarðar kr. Keypt hlutabréf umfram seld nema þannig 22,3 milljörðum kr. Hlutabréfaviðskiptin voru eingöngu á vegum Þáttar International ehf. Við fall bankanna var hlutafjáreign Þáttar International ehf. eins og að ofan greinir og var hún öll í Glitni.

Þegar litið er til einstakra viðskipta má sjá að Þáttur International kaupir hlutabréfin í Glitni.í febrúar 2007 af Þætti eignarhaldsfélagi ehf. Í apríl árið 2007 selur Þáttur International svo stóran hluta bréfa sinna og koma þau viðskipti til við yfirtöku félaga sem tengjast Baugi á stjórn bankans. Nánar er fjallað um þá yfirtöku í rammagrein í kafla 6.0. Síðan eru 210 milljónir hluta seldar í maí 2008.

Þáttur International ehf. var með lán hjá Morgan Stanley (MOS). Andvirði lánsins hafði farið til að fjármagna hlutabréfakaup Þáttar International ehf. í Glitni. Jafnframt var Morgan Stanley með veð í hinum keyptu hlutabréfum. Gjalddagi lánsins hjá MOS var 8. febrúar 2008.

Áhættunefnd Glitnis samþykkti á fundi sínum 6. febrúar 2008 lánsheimild til Þáttar International ehf. að fjárhæð 102 milljónir EUR (jafnvirði 10 milljarða kr.) til að greiða inn á ofangreint lán hjá MOS. Síðar í sama mánuði eða 27. febrúar kemur fram í fundargerð áhættunefndar Glitnis að:

„LAIS ætlar ekki að koma inn í dealinn sem þýðir að við þurfum að lána ca. EUR 180 m. (jafnvirði 17,8 ma.kr.) núna til viðbótar við EUR 102 m. sem við lánuðum 8. feb. sl. Erlendu lánin hafa heldur ekki verið að skila sér eins og skyldi til okkar og vantar ca. andvirði 12 ma.kr. þar uppá. Skuldabréfaútgáfa er líka ca. helmingi lægri fjárhæð en menn töldu í upphafi.“

Nefndin samþykkti að veita Þætti International ehf. viðbótarlánsheimild að fjárhæð 180 milljónir EUR. Samtals eru samþykktar lánsheimildir orðnar að fjárhæð 282 milljónir EUR eða jafnvirði 27,8 milljarða kr. Jafnframt kemur fram í fundargerð að ekki sé unnt að leggja meira í þetta mál að svo stöddu af bankans hálfu. Fyrirhuguð lán samkvæmt ofangreindum lánsheimildum áttu að fara til að greiða niður skuld Þáttar International ehf. við Morgan Stanley vegna hlutabréfakaupa þess fyrrnefnda í Glitni. Þáttur International ehf. er hluti af Milestone-samstæðunni en Milestone á 75,6% eignarhlut í félaginu. Í ljós kemur að ofangreind lán, sem Þáttur International ehf. hyggst taka til viðbótar öðrum lánum Milestone-samstæðunnar, sem þá þegar voru til staðar innan bankans, eru yfir leyfilegum útlánamörkum og gildandi reglum hvað varðar lán til sömu eða fjárhagslega tengdra aðila. Enda hafði Milestonesamsteypan í lok árs 2007 verið með rúmlega 31 milljarð kr. að láni hjá Glitni eða sem nam um 13% af eigin fé. Á fundi áhættunefndar Glitnis þann 29. febrúar 2008 er því samþykkt að hluti af skuld Þáttar International ehf. við Morgan Stanley verði fjármagnaður með tveimur lánum frá Glitni.til félagsins Svartháfs ehf. Samtals eru lán Glitnis til Svartháfs í upphafi um 191 milljón EUR eða jafnvirði 18,8 milljarða kr. Lán þessi voru síðan framlengd nokkrum sinnum og stóðu í 28,1 milljarði kr. í byrjun september 2008. Ástæða hækkunarinnar var að mestu vegna gengisbreytinga og kostnaðar við framlengingar á lánunum.

Í 3. gr. reglna nr. 216/2007, um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum, útgefinna af Fjármálaeftirlitinu, segir m.a.: „Stórar áhættuskuldbindingar vegna einstakra viðskiptamanna eða fjárhagslega tengdra aðila mega ekki fara yfir 25% af eiginfjárgrunni fjármálafyrirtækis“. Með tilliti til þessara reglna um áhættuskuldbindingar var Glitni.ekki heimilt að lána Þætti International ehf. ofangreind lán beint. Þess í stað er eftirfarandi leið farin til að greiða niður skuld Þáttar International ehf. hjá Morgan Stanley:

Fallið er frá að Glitnir láni Þætti International ehf. nauðsynlega fjárhæð beint til þess að Milestone-samstæðan verði áfram undir gildandi útlánamörkum. Þess í stað lánar Glitnir félaginu Svartháfi ehf. 191 milljón EUR að jafnvirði 18,8 milljarða kr. Svartháfur ehf. lánar síðan Þætti International ehf. sömu fjárhæð. Þáttur International ehf. greiðir Glitni.síðan sömu fjárhæð til baka. Glitnir greiðir Morgan Stanley upphaflegt lán Þáttar International ehf. og tekur handveð í hlutabréfunum.

Eigendaskipti urðu að félaginu Svartháfi ehf. 28. febrúar 2008, eins og áður segir, eða daginn áður en áhættunefnd Glitnis ákveður að lána félaginu 191 milljón EUR eða 18,8 milljarða kr. Því má ætla að eigendaskipti að félaginu Svartháfi ehf. hafi farið fram gagngert í þeim tilgangi að félagið gæti tekið við láni frá Glitni.og endurlánað síðan sömu fjárhæð til Þáttar International ehf. Með þessu var hægt að komast fram hjá leyfilegum útlánamörkum og gildandi reglum um stórar áhættur hvað varðar lán til sömu eða fjárhagslega tengdra aðila. Þegar áhættunefnd Glitnis samþykkir 29. febrúar 2008 lánafyrirgreiðslu til Þáttar International ehf. með milligöngu Svartháfs ehf. eru eftirfarandi tengsl milli lántakenda og bankans m.a. til staðar:

Einar Sveinsson er stjórnarformaður Glitnis. Hann er ennfremur einn af eigendum Þáttar International ehf. í gegnum Skeggja ehf. og Fjárfestingarfélagið Mátt ehf. Karl Emil Wernersson er í stjórn Glitnis. Hann er að auki í stjórn og einn aðaleigandi Þáttar International ehf. í gegnum Milestone ehf. Guðmundur Ólason er í stjórn Glitnis. Hann er ennfremur í stjórnum Þáttar International ehf., SJ2 ehf., Skeggja ehf. og Fjárfestingarfélagsins Máttar ehf., en þrjú síðasttöldu félögin mynda frumeigendur Þáttar International ehf. Werner Ívan Rasmusson, eigandi, stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Svartháfs ehf., er faðir Karls Emils Wernerssonar sem er í stjórn Þáttar International ehf. og Glitnis.

Samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi 2007 nemur eigið fé Þáttar International ehf. samtals 9 milljörðum kr., þar af er hlutafé 11,7 milljarðar kr. Afkoma félagsins árið 2007 var hagnaður að fjárhæð 2,7 milljarðar kr. Ársreikningur Svartháfs ehf. fyrir árið 2007 liggur ekki fyrir. Hlutafé er lítið eða aðeins 500 þúsund kr.65 Samkvæmt lánabók Glitnis voru skuldir Svartháfs ehf. við bankann 29,3 milljarðar kr. er bankinn féll.

Stím ehf. (áður FS37 ehf.)

Við umfjöllun um Stím ehf. vegna kaupa félagsins á hlutabréfum í Glitni verður fyrst farið yfir málefni FS37 ehf. en það félag varð síðar að Stími ehf. Þá verður sömuleiðis farið yfir málefni fjögurra dótturfélaga Stíms ehf., sem höfðu að því er virðist að meginmarkmiði að kaupa hvert um sig um 20% hlut í Stími ehf.

Einkahlutafélagið FS37 ehf. er stofnað í október 2007 og er stofnhlutafé félagsins 500 þúsund kr. Á fundi áhættunefndar Glitnis 12. nóvember 2007 eru málefni félagsins FS37 ehf. kynnt fyrir nefndinni. Fram kemur að nýtt eignarhaldsfélag, sem er í eigu Samherja 45%, Saga Capital 25%, Jakobs Valgeirs Flosasonar 20% og Ólafs Jóhanns Ólafssonar 10%, sé að vinna að kaupum á hlutabréfum í Glitni.og FL Group, 4,9% í hvoru félagi um sig. Vinnuheiti félagsins í upphafi var FS37 ehf., en fram kemur að nafni félagsins verði fljótlega breytt.

FS37 ehf. óskaði eftir allt að 80% fjármögnun á hlutabréfakaupunum. Hins vegar kemur fram að líklegt sé að það verði einungis farið fram á 78% lántöku þar sem 20%–22% komi hugsanlega í formi eigin fjár eða með víkjandi lánum frá Fons, BYR, Saga Capital og jafnvel Icebank. Óskað er heimildar áhættunefndarinnar til að lána FS37 ehf. allt að 80% af kaupverði 4,9% hlutar í Glitni.og 4,9% hlutar í FL Group. Lánsfjárhæð gæti numið allt að 24 milljörðum kr. Til tryggingar láninu verði sett að veði hin keyptu bréf í FL Group, allt hlutafé í FS37 ehf. auk sölu- og veðsetningarbanns á öðrum eignum. Niðurstaða áhættunefndarinnar var að ljúka málinu á þessum nótum. Á fundi áhættunefndar Glitnis síðar í sama mánuði eða hinn 20. nóvember 2007 eru málefni FS37 ehf. aftur kynnt fyrir nefndinni. Fram kemur að nokkrar breytingar hafi orðið á málinu í vinnslu frá síðasta fundi nefndarinnar en að eftirfarandi fyrirkomulag sé endanlegur „strúktúr“ á málinu:

„Ákveðið hafði verið að heiti nýs eignarhaldsfélags FS37 ehf. yrði Stím ehf. (áfram sama kennitala). Stefnt skuli að því að Stím ehf. kaupi 4,1% hlut í FL Group og 4,3% hlut í Glitni. Þá eru jafnframt komnir inn nýir eigendur en aðrir hafa horfið úr hópnum.“

Fram kemur að STM ehf. sé á þessu stigi í eigu Glitnis en að hluturinn sé ætlaður til sölu og unnið sé að því að finna fjárfesta til að kaupa hlutinn. Félagið STM ehf. sem talið er upp meðal stofnenda Stíms ehf. og sagt vera í eigu Glitnis hefur ekki fundist á skrá hjá Fyrirtækjaskrá. Kaupverð og þóknanir eru samtals 25 milljarðar kr. sem fjármagnaðir verða á eftirfarandi hátt:

Láninu frá Glitni.á að ráðstafa til kaupa á 4,1% hlut í FL Group og 4,3% hlut í Glitni.

Til tryggingar láninu verði sett að veði hin keyptu hlutabréf í FL Group, allt hlutafé í Stími ehf. (500 þúsund kr.) auk sölu- og veðsetningarbanns á öðrum eignum félagsins. Ekki er tekið beint veð í Glitnisbréfunum sem gerir það að verkum að Glitnir getur ekki innleyst til sín eða selt þau bréf ef gera þarf veðköll. Eins og fram kemur í tölvubréfi milli starfsmanna Glitnis 10. nóvember 2007 gera þeir sér grein fyrir þessu:

„Eina sem hægt er að gera er að gjaldfella lánið, fara í dómsmál (u.þ.b. 6 mán) og fá svo fjárnám í bréfunum og fara fram á nauðungarsölu í kjölfarið (3-6 mán. til viðbótar).“66

Þá verði sett inn í samþykktir félagsins ákvæði um að stjórn þess eða öðrum þeim, sem heimild hafa til að skuldbinda félagið, sé óheimilt að samþykkja hvers konar fjárfestingar eða skuldsetningu án þess að hafa áður aflað skriflegs samþykkis lánveitenda félagsins á hverjum tíma. Veðköll verði í 85% LTV (118% þekja) og 90% LTV (111% þekja).

Áhættunefndin samþykkti lánveitinguna miðað við ofangreint fyrirkomulag. Lánið varð síðar 19,5 milljarðar kr. Þá fékk FS38 ehf. lán hjá Glitni.að fjárhæð 2,5 milljarðar kr. til að fjármagna sinn hlut í kaupunum. Hinn 13. nóvember 2007 kaupir Stím ehf. samtals 640.000.000 hluti í Glitni.fyrir samtals 16,4 milljarða kr. Kaupgengi var 25,50.

Með bréfi til Fyrirtækjaskrár dags. 20. nóv. 2007 eru tilkynntar þær breytingar að nafni félagsins FS37 ehf. hafi verið breytt í Stím ehf. Jafnframt að Jakob Valgeir Flosason sé formaður og Þórleifur Stefán Björnsson meðstjórnandi. Framkvæmdastjóri og prókúruhafi hafi verið kjörinn Þórleifur Stefán Björnsson.

Á fundi áhættunefndar Glitnis 9. janúar 2008 er enn á ný farið yfir málefni Stíms ehf. Á fundinum er lagt til að eignarhlutur í Glitni.verði áfram 4,1% eins og ráðgert hafði verið en eignarhlutur í FL Group verði 2,8% í stað 4,1% og stafar það m.a. af hlutafjáraukningu í FL Group í desember 2007. Þá hefur aftur orðið breyting á eigendahópi Stíms ehf. og lítur hópurinn nú þannig út:

Í janúar 2008 er samþykkt að veita Stími ehf. 1 milljarðs kr. viðbótarlán. Lánsheimild hækkar þar með úr 19,5 milljörðum kr. í 20,5 milljarða kr. Þessu til viðbótar má nefna lán Glitnis til FS38 ehf./Fons ehf. að fjárhæð 2,5 milljarðar kr. til að fjármagna þeirra hlut í verkefninu. Í febrúar 2008 fær Stím ehf. arðgreiðslu frá Glitni.að fjárhæð 236,8 milljónir kr.

Á fundi áhættunefndar Glitnis sem haldinn var 31. mars 2008 er eftirfarandi lagt til og samþykkt:

„Stím ehf. stofni fjögur ný félög sem hvert um sig kaupi u.þ.b. 20% af eignum Stíms. Stefnt er að því að viðskiptin eigi sér stað fyrir lok mars 2008. Glitnir láni nýju félögunum fyrir 100% af kaupverðinu. Andvirðið fari til niðurgreiðslu skulda Stíms ehf. við Glitni. Hvert dótturfélag geri samning við móðurfélagið um 100% þátttöku í hagnaði næstu 3 árin. Verðmæti slíks samnings hefur verið metið af Markaðsviðskiptum sem 40% af undirliggjandi eign eða 4,5 milljarðar kr. Lánveitendur taki veð í hagnaðarhlutdeildarsamningum. Stím ehf. hefur síðan í hyggju að selja öll dótturfélögin til nýrra fjárfesta og félögin fari því út úr samstæðu Stíms.“

Þá kemur fram að endanleg fjárhæð lánanna til nýju félaganna taki mið af markaðsverði hlutabréfanna á söludegi. Í árshlutauppgjöri Glitnis 30. júní 2008 voru 1,5 milljarðar kr. afskrifaðir á Stím ehf.

Félögin fjögur sem lagt var til að stofna eru: Yfir heiðar ehf., Hnokki ehf., Hvannborg ehf. og Skarfhóll ehf.

Yfir heiðar ehf.

Félagið FS56 ehf. er stofnað 22. janúar 2008. Í stjórn félagsins eru Ágúst Þórhallsson formaður og Flosi Eiríksson meðstjórnandi. Á hluthafafundi í FS56 ehf. hinn 19. mars 2008 er ákveðið að breyta nafni félagsins í Yfir heiðar ehf. Á hluthafafundi í Yfir heiðar ehf. hinn 10. júní 2008 er ákveðið að stjórn félagsins verði framvegis skipuð einum stjórnarmanni og öðrum til vara. Þeir Ágúst og Flosi hverfa þá úr stjórn félagsins. Ólafur Haraldsson verður þá formaður stjórnar og Ragnheiður M. Ólafsdóttir varamaður í stjórn.

Hnokki ehf.

Félagið FS49 ehf. er stofnað 18. desember 2007. Í stjórn félagsins eru Ágúst Þórhallsson formaður og Flosi Eiríksson meðstjórnandi. Á hluthafafundi í FS49 ehf. hinn 19. mars 2008 er ákveðið að breyta nafni félagsins í Hnokki ehf. Á hluthafafundi í Hnokka ehf. hinn 10. júní 2008 er ákveðið að stjórn félagsins verði framvegis skipuð einum stjórnarmanni og öðrum til vara. Þeir Ágúst og Flosi hverfa þá úr stjórn félagsins. Ólafur Haraldsson verður þá formaður stjórnar og Ragnheiður M. Ólafsdóttir varamaður í stjórn.

Hvannborg ehf.

Félagið FS54 ehf. er stofnað 22. janúar 2008. Í stjórn félagsins eru Ágúst Þórhallsson formaður og Flosi Eiríksson meðstjórnandi. Á hluthafafundi í FS54 ehf. hinn 19. mars 2008 er ákveðið að stjórn félagsins verði framvegis skipuð einum stjórnarmanni og öðrum til vara. Þeir Ágúst og Flosi hverfa þá úr stjórn félagsins. Ólafur Haraldsson verður þá formaður stjórnar og Ragnheiður M. Ólafsdóttir varamaður í stjórn.

Skarfhóll ehf.

Félagið FS55 ehf. er stofnað 22. janúar 2008. Í stjórn félagsins eru Ágúst Þórhallsson formaður og Flosi Eiríksson meðstjórnandi. Á hluthafafundi í FS55 ehf. hinn 19. mars 2008 er ákveðið að stjórn félagsins verði framvegis skipuð einum stjórnarmanni og öðrum til vara. Þeir Ágúst og Flosi hverfa þá úr stjórn félagsins. Ólafur Haraldsson verður þá formaður stjórnar og Ragnheiður M. Ólafsdóttir varamaður í stjórn.

Tilgangur félaganna fjögurra er sá sami: Eignarhald, umsýsla, kaup og sala verðbréfa ásamt lánastarfsemi og öðrum skyldum rekstri. Eigandi allra fjögurra félaganna er Stím ehf. Samþykktir félaganna eru allar dagsettar 10. júní 2008. Þá er heimilisfang allra félaganna Borgartún 26, 105 Reykjavík.

Öll fá félögin lánsheimild hjá Glitni.að fjárhæð 3 milljarðar kr. sem ráðstafa skal á sama hátt, sem er: Að kaupa 0,85 – 0,86% hlutafjár í Glitni.og 0,61% – 0,64% hlutafjár í FL Group. Lánstími er 1 ár. Lánshlutfall er 100%. Gjaldfellingarheimild hvenær sem er á lánstímanum.

Stím ehf. selur síðan félögunum fjórum Glitnisbréfin 1. apríl 2008. Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Hlutabréfin eru seld félögunum fjórum á markaðsgengi sem var 17,15. Gengi hlutabréfanna var komið niður í 3,91 er bankinn féll. Til tryggingar lánunum er allt hlutafé í hverju félagi og hinir keyptu hlutir í FL Group. Þá er sölu- og veðsetningarbann á öðrum eignum félaganna. Ársreikningar félaganna fyrir árið 2007 liggja ekki fyrir. Hlutafé er 500 þúsund kr. hjá öllum félögunum. Engin gögn hafa fundist sem sýna fram á að Stím ehf. hafi getað selt dótturfélögin.

Q Iceland Holding ehf.

Hinn 19. september 2008 er Fyrirtækjaskrá tilkynnt að á hluthafafundi í félaginu ELL 162 ehf. sem haldinn var 30. júní 2008 hafi verið ákveðið að breyta nafni félagsins í Q Iceland Holding ehf. Samkvæmt samþykktum Q Iceland Holding ehf. er tilgangur félagsins kaup, sala, rekstur, eignarhald og leiga fasteigna og hvers kyns lausafjár; eignarhald, kaup og viðskipti með hlutabréf, hluti í félögum, önnur verðbréf og hvers kyns önnur fjárhagsleg verðmæti; lánastarfsemi og skyldur rekstur.

Fyrirtækjaskrá er síðan tilkynnt 29. september 2008 að á hluthafafundi í Q Iceland Holding ehf. sem haldinn var 30. júní 2008 hafi stjórnarmönnum félagsins verið fjölgað úr tveimur í þrjá. Stjórn félagsins var þá þannig skipuð: Guðmundur J. Oddsson, búsettur á Englandi, H.E. Sheikh Sultan Bin Jassim Al-Thani og Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani. Sá síðastnefndi er yngri bróðir emírsins af Katar.

Á seinni hluthafafundinum er 16. gr. samþykkta félagsins jafnframt breytt og hljóðar svo eftir það:

„Stjórn félagsins skal skipuð einum til þremur mönnum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins milli hluthafafunda og gætir hagsmuna þess gagnvart þriðja manni. Undirskrift stjórnarmanns skuldbindur félagið. Undirskrift eins stjórnarmanns skuldbindur félagið nema þegar um er að ræða ráðstöfun eigna félagsins að verðmæti meira en 10.000 evrur, en þá skal afla skriflegs samþykkis hans hátignar Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani af Quatar.“

Ofangreind breyting á 16. gr. samþykktanna felur í sér að einn stjórnarmaður, Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani, getur skuldbundið Q Iceland Holding ehf. án takmarkana.

Ársreikningur Q Iceland Holding ehf. liggur ekki fyrir. Hlutafé er 500 þúsund kr. Enginn framkvæmdastjóri er skráður fyrir félaginu.

Hinn 22. september 2008 er Fyrirtækjaskrá tilkynnt að á hluthafafundi í félaginu Bakkafullur ehf. sem haldinn var 19. september 2008 hafi verið ákveðið að breyta nafni félagsins í Q Iceland Finance ehf. Kjörin var ný stjórn fyrir félagið. Í stjórn þess er Telma Halldórsdóttir sem jafnframt er framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins. Tilgangur félagsins er kaup og sala hlutabréfa, eignarhald á hlutabréfum, kaup og sala fasteigna, eignarhald og rekstur fasteigna, lánastarfsemi og annar skyldur rekstur. Hlutafé er 500 þúsund kr.

Q Iceland Holding ehf. fær lán hjá Kaupþingi banka til að fjármagna kaup dótturfélags síns Q Iceland Finance á hlutabréfum í Kaupþingi.

Hinn 26. september kaupir Q Iceland Finance hlutabréf í Kaupþingi banka hf.:

Hinn 26. september 2008 keypti Q Iceland Finance ehf. rúmlega 37 milljónir hluta í Kaupþingi banka af eigin viðskiptum Kaupþings banka hf. Við fall bankanna átti Q Iceland Finance ehf. ennþá öll hlutabréfin sem keypt höfðu verið. Kaupþing veitti lán fyrir öllu kaupverði hlutabréfanna ásamt kostnaði, samtals 25,7 milljarða kr.

Í september 2008 voru afgreiddar nokkrar lánsbeiðnir til Al-Thani og félaga sem honum tengjast:

Q Iceland Holding ehf., eitt félaga Al-Thani, sækir um lán að fjárhæð 28 milljónir EUR (jafnvirði 3,6 milljarða kr.) til kaupa á hlutabréfum í Alfesca.

Tvö félög í hans eigu sækja um lán til að kaupa CLN (Credit Linked Note) tengd Kaupþingi.

Þriðja lánsbeiðnin snýr síðan að fjármögnun á kaupum Al-Thani á hlutabréfum í Kaupþingi í lok september 2008. Um var að ræða kaup á 5,01% hlut í bankanum.

Í fundargerð lánanefndar Kaupþings frá 11. september 2008 er bókað:

„Q Iceland Holding ehf. Félagið er á undanþágulista hvað lánshæfi varðar. Raunverulegur eigandi Q Iceland Holding ehf. er HH Sheikh Mohammed Bin Khalifa Al-Thani, bróðir emírsins af Qatar. Félagið fer fram á lán að upphæð EUR 28 m, tilgangur þess er að kaupa hluti í Alfesca hf. Félagið var stofnað nýlega (2008). Tillagan er eftirfarandi: Lánsupphæð: Allt að EUR 28.000.000 (umsýslugjald innifalið) Lánstími: 4 ár Vextir: E + 2,25% Vaxtatími: 6 mánuðir Umsýslugjald: 1% Veð: 850.000.000 hlutir í Alfesca hf. Veðsetningarhlutfall: 60% Ef veðsetningarhlutfallið fer í 80% (miðað við lokaverð á hlutum í Alfesca hf. þegar viðskipti með þá eiga sér stað) fær lántaki einn viðskiptadag til að koma því aftur í 60% með því að greiða niður lánið eða koma með ný veð, sem lánveitandi samþykkir. Lánanefnd vísaði erindinu til lánanefndar stjórnar.“

Þrátt fyrir samþykkt lánanefndar bankans varð ekkert af kaupunum á Alfesca. Al-Thani fær hins vegar lán fyrir Kaupþingsbréfunum og svo virðist sem ofangreindar 28 milljónir EUR (jafnvirði 4 milljarða kr.) hafi gengið upp í fjármögnun á þeim kaupum.

Lánveitingin vegna hlutafjárkaupanna í Kaupþingi kemur ekki fram í yfirliti yfir stórar áhættuskuldbindingar í bankanum þann 30. september 2008. Hlutafjárkaupin og lánveitingar þeim tengdar eiga sér hins vegar stað. Það staðfesta gögn úr kerfum bankans.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum bankans fór afgreiðsla lánsins og hlutabréfakaupin fram með eftirfarandi hætti:

Serval Trading Group Corp. (Serval) Lánsfjárhæð: Fær Peningamarkaðslán hjá Kaupþingi að fjárhæð 12,8 ma.kr. Vextir: 17,6%. Gjalddagi: 31. október 2008. Tryggingar: Persónuleg ábyrgð Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani. Eigandi: Serval er í eigu Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani. Millifærsla: Serval flytur 12,8 ma.kr. yfir á reikning Choice Stay. Gerland Asset Ltd. (Gerland) Lánsfjárhæð: Fær Peningamarkaðslán hjá Kaupþingi að fjárhæð 12,8 ma.kr. Vextir: 17,6%. Gjalddagi: 31. október 2008. Tryggingar: Engar. Eigandi: Ólafur Ólafsson. Millifærsla: Gerland flytur 12,8 ma.kr. yfir á reikning Choice Stay. Choice Stay Innborgun: Choice Stay móttekur 12,8 ma.kr. frá Serval. Innborgun: Choice Stay móttekur 12,8 ma.kr. frá Gerland. Eigandi: Félagið er í eigu Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani og Ólafs Ólafssonar. Félagið er skráð á Kýpur. Millifærsla: Choice Stay flytur 25,7 ma.kr. yfir á reikning Q Iceland Finance ehf. Q Iceland Finance ehf. (dótturfélag Q Iceland Holding ehf.) Innborgun: Q Iceland Finance ehf. móttekur 25,7 ma.kr. frá Choice Stay. Eigandi: Félagið er í eigu Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani. Ráðstöfun: Q Iceland Finance kaupir 37.100.000 hluti í Kaupþingi á genginu 690, samtals 25,6 ma.kr. Þóknun banka er 128 milljónir kr. Samtals greitt 25,7 ma.kr.

Lánveitingum Kaupþings og hvaða leið peningarnir fara þegar kemur að sjálfum hlutabréfakaupunum verður best lýst á eftirfarandi hátt:

Á fundi lánanefndar stjórnar Kaupþings, dags. 24. september 2008, er samþykkt lán að fjárhæð 50 milljónir USD til félagsins Brooks Trading Ltd. en það félag er í eigu Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani. Lánið er án ábyrgðar. Þetta lán er greitt út sem peningamarkaðslán 19. september og síðan framlengt 30. september 2008. Hinn 8. október skiptir Brooks Trading rétt rúmlega 50 milljónum USD í krónur í Kaupþingi í Lúxemborg á 250 ISK/USD. Brooks Trading Ltd. sendir greiðslufyrirmæli þann sama dag um að greiddir verði 12,5 milljarðar kr. inn á lán Serval Trading. Greiðsla Brooks Trading er fjármögnuð með andvirði ofangreinds 50 milljóna USD láns. Þann 21. október 2008 greiðir Ólafur Ólafsson 401,9 milljónir kr. inn á sama lán. Þar með er Serval Trading lánið uppgreitt.

Lánið til Brooks Trading Ltd. (Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani) að fjárhæð 50 milljónir USD var enn ógreitt í lok október 2008. Lánið til Gerland Asset Ltd. (Ólafur Ólafsson) að fjárhæð 12,9 milljarðar kr. var enn ógreitt í janúar 2009. Lánið er án ábyrgðar. Við mat á stórum áhættuskuldbindingum Kaupþings er Gerland Asset Ltd. ekki talið tengjast Ólafi Ólafssyni og því er ekki tekið tillit til skuldbindinga Gerland Asset í kafla 8.0 við mat á heildarskuldbindingum Ólafs Ólafssonar. Við mat á tengdum aðilum/ félögum er notast við víðustu skilgreiningu fjármálafyrirtækjanna sjálfra á því hvaða aðilar teljast tengdir og hverjir ekki.

Eins og fram kom hér að framan finnst engin ákvörðun í fundargerðum lánanefnda Kaupþings um lán til hlutafjárkaupa til þeirra félaga sem koma við sögu, þ.e. Q Iceland Holding ehf., Q Iceland Finance ehf., Serval Trading Group Corp. og Gerland Asset Ltd.

Afborgun af láni Serval Trading í eigu Al-Thani er sérkennileg. Brooks Trading greiðir 12,5 milljarða kr. en jafnframt greiðir Ólafur Ólafsson 401,9 milljónir kr. af láninu þó svo að hann sé ekki skuldari á láninu.

Samkvæmt ofangreindu er ljóst að Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani hefur ekki keypt hlutafé í Kaupþingi fyrir eigin fjármuni.

Þá vekur það athygli hvers vegna félag í eigu Ólafs Ólafssonar, Gerland Asset Ltd., er að taka lán hjá Kaupþingi til að auðvelda þriðja aðila að kaupa hlutafé í bankanum.

Ólafur Ólafsson greiðir af láni Serval Trading en ekki af láni Gerland Asset Ltd. sem hann er þó eigandi að.

Þegar bankarnir féllu var Q Iceland Finance ehf. þriðji stærsti hluthafi Kaupþings með 5,01% eignarhlut.

Í ljósi þess að Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani fékk allt kaupverðið að láni, er fróðlegt að sjá hvað Kaupþingsmenn sögðu þegar kaup Sheiksins á 5,01% í bankanum voru frágengin. Í fréttatilkynningu Kaupþings frá 22. september 2008 segir m.a.:

Sigurður Einarsson, stjórnarformaður: „Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohamed Bin Kalifa Al-Thani velkominn í hluthafahóp Kaupþings. Það hefur lengi verið stefna okkar að laða nýja fjárfesta að bankanum og því er ánægjulegt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn frekar. Við hlökkum til að vinna með hans hátign Sheikh Mohamed í framtíðinni.“

Í viðtali við Hreiðar Má Sigurðarson í RÚV dags. 22. september 2008 kemur m.a. fram:

„Staða Kaupþings banka á alþjóðlegum fjármálamörkuðum styrktist mjög við kaup Mohameds prins frá Katar á 5% hlut í bankanum“

Rannsóknarnefnd Alþingis getur ekki séð að kaup á hlutabréfum í bankanum fjármögnuð af bankanum sjálfum án neinnar áhættu þess er kaupir hlutinn styrki stöðu bankans.

Um CLARA | Um Vaktarann | Um skýrsluna | Hjálp